Ég ætla að byrja á magnaða tvíeykinu mömmu og pabba, a.k.a Rósa og Guðjón!
Mamma er ein af mínum uppáhalds manneskjum. Hún er mikill húmoristi og elskar góðan kúkabrandara :oD Um þrítugt ákvað hún að hætta að eldast og hefur hún staðið í stað með aldurinn síðustu árin...Hún er eina manneskjan sem getur scare me silly með því einu að anda að sér hátt í gegnum nefið......þú hefur ekki upplifað ótta fyrr en þú hefur heyrt í mömmu á innsoginu ;o)
Pabbi er algert gæðaeintak :oD Hann er einungis 10 árum eldri en mamma og er því fertugur ;o) Hann á alveg rosalega erfitt með að segja nei við börnin sín og skýrir það af hverju ég núna 23 ára fæ ennþá í skóinn :) Hann er rosalega rólegur og kemur vel upp á móti mömmu sem er pínu skellibjalla ;o)
My folks everybody!


1 ummæli:
Já, ég man þegar þú varst að tala um þau í vinnunni. Ég vona að þau lesi þetta:)
Skrifa ummæli