miðvikudagur, júlí 19

Fyrirgefðu elsku pungur!

Jæja það muna kannski margir eftir blogginu hérna um daginn þar sem ég lét einn brúnan og heitan vaða bara beint í hann Magna. Þá fannst mér hann ekki vera að standa sig og það voru margir ekki sáttir við þessi orð mín.
Ég er að horfa á Rockstar núna og ég vil hér með biðja hann Magna okkar innilega afsökunar á orðum mínum að hann ætti ekki heima þarna. Hann var frábær í kvöld og þjóðarstoltið var coming out of my ass!
Fyrirgefðu Magni minn, ég býð þér í Mojito þegar þú kemur heim.

1 ummæli:

Glimmergella sagði...

MAGNI-FICENT !

Hélt ég myndi rifna úr gleði þegar hann fékk uppkallslagið í gær :)

Hann verður bara betri og betri.

(ehem... má ég koma með í Mojito?)