sunnudagur, janúar 27

Týndi sonurinn snýr aftur!!!

Í dag er mikill hamingjudagur!
Hann Cesar sem er búin að vera týndur í 15 daga sneri heim í nótt! Ég þurfti að fara á klósettið í nótt og á leið þangað inn heyrði ég svakalega eymdarlegt mjálm og kemur ekki Cesar röltandi úr myrkrinu.
Hann var drulluskítugur og horaður en alveg jafn krúttlegur:)
Hvar hann hefur verið allan þennan tíma veit ég ekki en ég vona að það hafi verið einhverstaðar inni því óveðrin sem hafa verið að ganga hérna yfir síðastliðnar 2 vikur hafa ekki verið falleg.
Jæja ég er farin að knúsa kisann ....chiao!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Alveg æðislegt að hann hafi komið aftur heim, voða forvitin hvar hann hefur verið :)

Nafnlaus sagði...

Þetta var ég hér fyrir ofan ;)

Nafnlaus sagði...

JEY !!! Æðislegar fréttir :)